S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
6.3.2005 | 18:30 | Óskar Ó. Jónsson
Helena ótrúleg í bikarsigri Hauka í unglingaflokki kvenna
Þetta var vissulega tímamótasigur fyrir Helenu Sverrisdóttur sem varð þarna bikarmeistari í sjötta sinn á ferlinum en hún hafði fram að þessum leik einungis unnið bikarmeistaratitla í flokkum upp fyrir sig þar á meðal í meistaraflokki í síðasta mánuði. Helena hafði orðið bikarmeistari í 9. flokki (2002), 10. flokki (2002, 2003), unglingaflokki (2004) og meistaraflokki (2005) en aldrei í þeim flokki sem 1988-árgangurinn var í á hverri stundu. Þann flokk hafði Keflavík alltaf unnið bikarmeistaratitilinn þar til í dag. Pálína Gunnlaugsdóttir var stigahæst í Haukaliðinu með 25 stig, Helena var búinn að ná þrefaldri tvennu þegar tvær mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta og endaði með 18 stig, 22 fráköst, 18 stoðsendingar og 5 stolna bolta, Ösp Jóhannsdóttir nýtti 5 af 9 þriggja stiga skotum sínum og skoraði 17 stig, gaf 5 stoðsendingar og stal 5 boltum og Ragnheiður Theódórsdóttir var með 13 stig. María Ben Erlingsdóttir skoraði mest fyrir Keflavík eða 17 stig en Bryndís Guðmundsdóttir var með 13 stig, 21 frákast, 6 stoðsendingar og 6 varin skot. Bára Bragadóttir skoraði 13 stig og Hrönn Þorgrímsdóttir var með 12 stig og 5 stoðsendingar. |