© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
3.3.2005 | 14:18 | bl
Samkaupsmótið í Reykjanesbæ um helgina
Hið árlega Samkaupsmót í Reykjanesbæ verður haldið um næstu helgi. Þetta mót er fyrir iðkendur á aldrinum 5-11 ára. Þetta mót er leikið í anda minniboltahugsjónarinnar, þ.e. allir fá að spila mikið og lítil áhersla er lögð á sigur. Í ljósi þess eru skoruð stig í leikjum ekki talin, enginn sigurvegari er í hverjum leik og enginn vinnur því mótið.

Fyrir utan leikina þá er ýmislegt annað í boði fyrir krakkanna á mótinu, svo sem kvöldvaka, bíóferð, sund og pizzur og kók.

Á mótinu í ár verður þáttökumetið frá því í fyrra slegið. Í ár verða leikmenn um 850 í 124 keppnisliði frá 15 félögum. Leikir mótsins verða um 300 og fara þeir fram á 10 völlum. Keflvíkingar eru með flest lið á mótinu eða 24, önnur lið sem ná að vera með fleiri en 10 lið eru Breiðablik, Fjölnir, UMFG og KR.

Athygli vekur uppgangur í kvennakörfunni. Á mótinu verða 47 stúlkulið, auk nokkurra blandaðra liða. Keflavík, UMFG, Haukar og Njarðvík senda fleiri stelpulið á mótið en strákalið og kemur það kannski ekki á óvart þar sem þetta eru bestu kvennakörfuknattleikslið landsins.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslensku stelpurnar í U-16 mættu sterku sænsku liði á Norðurlandamótinu 2009. Hér er Ína María Einarsdóttir með boltann.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið