© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.3.2005 | 15:47 | bl
Djordjevic gerður að UNICEF sendiherra
Aleksandar Djordjevic, þekktasti körfuknattleiksmaður Serbíu og Svartfjallalands, hefur verið gerður að sendiherra hjá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir hönd heimalands síns.

Þessi mikli snillingur sem leikið hefur með mörgum stórliðum í Evrópu á löngum ferli sínum, mun vinna að réttindamálum barna í heimalandi sínu, auk þess sem hann mun koma að einstaka verkefnum á sviði félags- og heilbrigðismála.

Jdordjevic, sem orðinn er 37 ára gamall mun ljúka ferli sínum í sumar. Samningi hans við Scavolini lauk í síðustu viku og mun hann ljúka tímabilinu á Ítalíu með Milano. Á ferli sínum varð hann Evrópumeistari 1991, 1995 og 1997, heimsmeistari 1998 og sigurvegari í Eurolieague 1992 með félögum sínum í Partizan Belgrad.

Þann 2. júlí í sumar mun Djordjevic gangast fyrir góðgerðarleik í Belgrad, þar sem félagar hans úr hinum ýmsu liðum í gegnum tíðina, munu etja kappi.

Af vef FIBA Europe.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið