S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.2.2005 | 11:51 | bl
Ísland í erfiðum riðli í A-deild U-16
Evrópukeppni U-16 ára lið karla mun fara fram í Leon á Spáni í sumar. Þjálfari liðsins er Einar Árni Jóhannsson. Ísland var eina norðurlandaþjóðin sem átti fulltrúa í A-deild Evrópukeppninnar, en dregið var í þremur aldursflokkum karla og kvenna. Í keppni U-16 ára liða kvenna var Ísland í efsta styrkleikaflokki í B-deildinni, en liðið sem lék í keppninni sl. sumar var hársbreidd frá því að vinna sér sæti í A-deildinni. Með Íslandi í riðli í EM U-16 kv. verða Svíþjóð, Slóvenía og Holland. Mótið fer fram í Eislandi. Þjálfari liðsins er Hlynur Skúli Auðunsson. U-18 ára lið karla lenti í riðli með Finnlandi, Svíþjóð og Makedóníu, en það mót fer fram í Slóveníu. Þjálfari liðsins er Ingi Þór Steinþórsson. U-18 ára lið kvenna, sem leikur í Bosníu í sumar mætir þar liðum frá Hvíta Rússlandi, Lúxembourg og Rússlandi. Þjálfari liðsins er Ágúst S. Björgvinsson. Loks mun U-20 ára landslið karla leika í Evrópukeppni í Varna í Búlgaríu í sumar. Í riðli með Íslandi verða Pólland, Slóvenía, Finnland, Georgía og Írland. Öll íslensku liðin leika í B-deild Evrópukeppninnar, nema U-16 ára lið karla sem er í A-deild. Nánari upplýsingar um dráttin er að finna á vef FIBA-Europe. |