S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
26.6.2015 | 21:04 | RG | FIBA
Serbía og Frakkland leika til úrslita
Serbar glöddust mikið í kvöld
Serbar sigruðu Hvít-Rússa 74-72 í æsispennandi leik fyrr í dag og leika Serbarí því í fyrsta skipti til úrslita á EuroBasket. Ava Dabovic átti enn einn stórleikinn fyrir Serba og skoraði 21 stig en Yelena Leuchanka var stigahæst Hvít-Rússa með 22 stig. Í leik Frakka og Spánverja var jafnt allan fyrri hálfleik en Frakkar voru betri í þriðja leikhluta og unnu leikinn 63-58. Sandrine Gruda skoraði 16 stig fyrir Frakkana en stigahæst Spánverja var Alba Torrens með 13 stig. Frakkar eru því komnir í úrslitin annað mótið í röð en þeir urðu Evrópumeistarar 2001 og 2009. Á sunnudaginn mun stjórn FIBA Europe funda í Búdapest, þar sem mótið fer fram, og kjósa um hvar EuroBasket kvenna 2017 mun fara fram. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og stjórnarmaður í FIBA Europe mun að sjálfsögðu sitja fundinn og taka þátt í kjörinu. Sigursælasta þjóð EuroBasket kvenna eru Sovétríkin en þær unnu mótið í 21 af 23 fyrstu mótunum, síðast 1991 þegar lið þeirra var lagt niður og fyrrum Sovétþjóðir hófu að leika undir eigin merkjum. Frá 1991 hafa fyrrum Sovétþjóðir unnið í 5 af 11 skiptum. Nánari upplýsingar um EuroBasket kvenna 2015 má finna á heimasíðu mótsins |