S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
21.6.2015 | 10:13 | Kristinn | Yngri landslið
U20 kvenna og U15 ára liðin · Dagskráin í dag sunnudag
U20 kvenna Stelpurnar léku í gær gegn Danmörku. Þær dönsku höfðu sigur 63:85. Í dag leika þær sinn síðasta leik á mótinu gegn Eistlandi kl. 12.00 að íslenskum tíma og verður bein útsendinga á síðunni hér að ofan og tölfræði hér á kki.is. Tölfræði mótsins má sjá hérna: www.basket.dk/NM-U20-Damer. U15 liðin Bæði lið léku tvo leiki í gær. Strákarnir unnu sína leiki og leika til úrslita í dag gegn Berlín kl. 13.00 að íslenskum tíma. Þeir lögðu lið Eistlands 82:79 og svo lið Topsportsschool frá Belgíu í hörkuleik 49:45. Stelpurnar okkar léku gegn liði Danmerkur tvívegis í gær, fyrst töpuðu þær naumlega en í seinni leiknum unnu þær leikinn. Þær munu leika gegn Finnlandi um 5. sætið á mótinu kl. 10.45 í dag. Nánari fréttir eru á facebook-síðu CPH-Invitational-mótsins þar verða færðar inn fréttir af leikjunum jafnóðum. |