© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
27.1.2005 | 10:25 | bl
40 ára afmælishátíð og frítt á leik Tindastóls og ÍR
Í tilefni þess að 40 ár eru nú liðin frá því að körfuboltaleikur hófst á Sauðárkróki verður frítt á leik vikunnar í Intersportdeildinni gegn ÍR, en hann er á fimmtudagskvöldið kl. 19:15 í Íþróttahúsinu, auk þess sem afmælisdagskrá verður á Kaffi Krók eftir leikinn.

Þann 25. janúar 1965 lék Tindastóll sinn fyrsta körfuboltaleik. Spilað var í leikfimisal gamla barnaskólans við lið Hólasveina úr Hjaltadal. Leiknum lauk með sigri Tindastóls, 54:19, og var Sveinn Sigfússon stigahæstur með 16 stig, en næstur honum kom Baldvin Kristjánsson með 14 stig. Lið Tindastóls skaut alls 89 sinnum á körfu í leiknum. Dómari var Helgi Rafn Traustason, en hann var ein aðaldriffjöður körfboltans á Krók fyrstu árin.

Eins og fyrr segir hefst leikur Tindastóls og ÍR kl. 19:15 og eru allir hvattir til að mæta tímanlega þar sem óvæntar uppákomur verða í tengslum við leikinn - frítt inn! Eftir leikinn verður afmælisdagskrá á Kaffi Krók þar sem tímamótanna verður minnst og sagan rifjuð upp. Aðgangseyrir verður á afmælisdagskrána.

Af vef Tindastóls
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá Ársþingi KKÍ á Flúðum 1994
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið