© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
20.1.2005 | 9:50 | bl
Enn sigur hjá Dynamo í FIBA Europe League
Dynamo St. Petersburg er eina taplausa liðið í FIBA Europe Leage eftir sigur á úkraínska liðinu Khimik í gærkvöldi, 73-63. Jón Arnór skoraði 14 stig fyrir Dynamo.

Gestirnir frá Rússlandi réðu ferðinni í fyrsta leikhluta og leiddu 22-14 að honum loknum. Khimik náðu að rétta úr kútnum fyrir hálfleik og munurinn aðeins tvö stig fyrir seinni hálfleikinn, 35-33. Dynamomenn byrjuðu þriðja leikhluta af krafti, með því að skora 10 stig gegn einu stigi heimamanna. Þeir héldu forskotinu út leikinn og unnu sinn 11. sigurleik í röð í Evrópukeppninni.

Jón Arnór var í byrjunarliðinu að vanda og lék í 31 mínútu. Hann skoraði 14 stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu. Hittnin hjá honum var góð í tveggja stiga skotum (2/4) og enn betri í þriggja stiga skotum (3/4), en hann hitti hins vegar ekki eins vel úr vítum (1/4).

Af vef KR.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið