S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
29.12.2004 | 17:05 | Óskar Ó. Jónsson
Endurtaka íslensku stelpurnar leikinn í Sheffield í kvöld?
Ívar Ásgrímsson, landsliðsþjálfari, var ánægður með leik íslenska liðsins í gær og þá sérstaklega karakter sem liðið sýndi á lokamínútum þegar íslensku stelpurnar unnu upp sex stiga forskot enska liðsins. Íslenska landsliðið hefur nú unnið 7 af 13 landsleikjum undir hans stjórn á árinu þar af tvo þeirra í fjórum landsleikjum gegn Englandi en þjóðirnar mætast nú í kvöld í fimmta sinn á árinu 2004. Fjórar stelpur í enska landsliðinu spila með Sheffield Hatters, þar af tvær sem byrjuðu inná í leiknum í gær og verða þær því á heimavelli í leiknum í kvöld en uppselt er á leikinn og má búast við mikillri stemningu í kvöld. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 16 ára stelpa úr Njarðvík kemur inn í liðið í kvöld í staðin fyrir Hildi Sigurðardóttur sem meiddist lítillega á æfingu í morgun og mun af þeim sökum hvíla í leiknum í kvöld. Í tólf manna hópnum í kvöld verða þar sem fjórar sextán ára stelpur og fer þar fremst Helena Sverrisdóttir sem var með 19 stig, 10 stoðsendingar og 7 stolna bolta í sigrinum í gær. Mynd: Hildur Sigurðardóttir, eini atvinnumaðurinn í íslenska liðinu, hvílir í kvöld vegna meiðsla sem hún hlaut á æfingu í morgun. |