© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
25.11.2004 | 15:31 | hbh
Gefum blóð!
Ágætu körfuknattleiksunnendur!

Blóðbankinn hefur sent frá sér neyðarbeiðni vegna skorts á blóði.

Við á skrifstofu KKÍ hvetjum alla til þess að aðstoða Blóðbankann í þessari miklu neyð með því að gerast blóðgjafar og gefa blóð með reglulegu millibili.

Frétt frá Blóðbankanum.

Skapast hefur mikil og rík þörf fyrir blóðhluta hjá sjúkrahúsunum vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum.
Þegar Blóðbankinn sendir áskorun af þessu tagi, þá eru ríkar ástæður að baki.

Blóðbankinn sinnir heilbrigðisstofnunum um land allt. Á þessum árstíma reynist Blóðbankanum oft erfitt að halda uppi nægum blóðhlutabirgðum. Mikið hefur verið notað af rauðkornum, blóðvökva (plasma) og blóðflögum síðustu dagana. Rauðkorn og blóðvökvi eru notuð við aðgerðir og slys. Blóðflögur eru gjarnan notaðar í stórum aðgerðum, en ekki síst sem stuðningsmeðferð við krabbameinssjúka. Það er því mikilsvert að Blóðbankinn eigi nægar birgðir þessara blóðhluta á hverjum tíma.

Blóðbankinn leggur sérstaka áherslu á að fá virka blóðgjafa í öllum blóðflokkum til að koma.

Næstu daga er Blóðbankinn opinn sem hér segir:
Fimmtudagur 25.nóv. 8-19
Föstudagur 26.nóv. 8-17
Mánudagur 29.nóv. 8-19.

mt: Hannesi Birgi Hjálmarssyni framkvæmdastjóra KKÍ rann blóðið til skyldunnar og gaf hann blóð í Blóðbankunum síðdegis í dag.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Margrét Kara Sturludóttir á fleygiferð í átt að körfunni í leik með KR gegn Grindavík í úrslitakeppni kvenna 2008-2009. KR vann Grindavík 2-1 í seríunni og mætti Keflavík í undanúrslitunum þar sem þær unnu 3-0. Það voru svo Haukar og KR sem spiluðu til úrslita um titilinn þar sem Haukar unnu í oddaleik og urðu Íslandsmeistarar kvenna 2009.

KR og Haukar mættust svo í úrslitarimmunni um Íslandsmeistartitiliinn.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið