S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
23.11.2004 | 13:20 | bl
Keflavík mætir Reims
Hægt verður að fylgjast með gangi mála í leiknum á vef Keflvíkinga. Keflavík sigraði Reims í fyrri leik liðanna í Keflavík fyrr í þessum mánuði, 93-73. Liðið þarf á útisigri að halda í riðlinum eftir eins stig tap gegn Bakken Bears frá Danmörku í síðustu viku. Keflavík og Bakken Bears eru efst í riðlinum. Óvíst er hvort Jón Nordal Hafsteinsson geti leikið með Keflavík í kvöld, en hann meiddist í undanúrslitaleiknum í Hópbílabikarnum gegn Njarðvík um síðustu helgi. Reims hefur fengið nýjan bandarískan leikmann, Antoine Gillespie, til félagsins í eina viku til reynslu. Leikmaðurinn hefur áður leikið í Frakklandi, en var síðast í Þýskalandi. Liðinu hefur ekki gengið vel í frönsku deildinni það sem af er vetrar og aðeins unnið tvo leikið en tapað átta. Gillespie á að hressa uppá sóknarleik liðsins. Hægt verður að fylgjast með gangi mála í leiknum á vef Keflvíkinga. |