S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
12.11.2004 | 16:27 | bl
Síðasta fjölliðamótshelgi ársins framundan
Mótin um helgina verða víðs vegar um landið eins og venja er. Leikið verður Í Hafnarfirði, Reykjavík, Hveragerði, Flúðum, Sauðárkróki, Akranesi, Grindavík og Keflavík. Auk þess verður í Vestmannaeyjum fjölliðamót í 7. flokki karla sem frestað var vegna veðurs um síðustu helgi. Tveir leikir er á dagskrá Intersport-deildarinnar í kvöld og með þeim lýkur sjöttu umferð. Í Grindavík taka heimamenn á móti Tindastól og í DHL-höllinni mætast KR og Keflavík. Sjöunda umferð deildarinnar hefst síðan á sunnudag og verður framhaldið á mánudag og þriðjudag. Einnig verður leikið í 1. deild karla, sem og í 2. deild karla og kvenna um helgina. Um síðustu helgi fór fram fjölliðamót í 10. flokki kvenna í Vík í Mýrdal. Var það fyrsta fjölliðamót yngri flokka sem þar fer fram. Meðfylgjandi mynd var tekin í mótinu. Það var Jónas Erlendsson í Vík sem sendi kki.is myndina og kunnum við honum þakkir fyrir. |