S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
9.11.2004 | 17:19 | bl
Helgi Bragason leggur flautuna á hilluna
Helgi hóf ferilinn sem dómari haustið 1987. Hann tók prófið hjá þeim ágæta norska dómara Tor Kristian Bakken sem hingað kom til lands til námskeiðshalds. Fyrsti leikur Helga í úrvalsdeild var Breiðablik-Valur í Digranesi 22.01.1988 kl. 20:00. Meðdómari Helga var Ómar Scheving. Valur sigraði í leiknum 79-54. FIBA prófið tók Helgi 1992 í Osló í Noregi. Fyrsta FIBA verkefnið var Evrópukeppni drengjalandsliða sem fram fór í Belgíu í júní 1992. Í desember sama ár svo fyrstu leikirnir í Evrópukeppnum félagsliða í Frakklands með Englendingnum Trevor Pountain. FIBA ferlinum lauk síðastliðið vor. KKÍ þakkar Helga fyrir ánægjuleg ár í dómgæslunni og kveður hann með eftirsjá. Þó er rétt að horfa fram á veginn í dómaramálum með tilhlökkun með Helga sem FIBA-instrucktor Íslands. |