S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
27.10.2004 | 10:45 | bl
Fannar og Robinson dæmdir í tveggja leikja bann
Í kjölfar slagsmála í leik ÍR og Tindastóls sl. sunnudagkvöld voru þeir Fannar og Robinson kærðir til aganefndar fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi. Báðir voru dæmdir í tveggja leikja bann samkvæmt B-lið 4. greinar reglugerðar aganefndar. Þá var tekin fyrir kæra á hendur I. Magna Hafsteinssyni leikmanni Snæfells í Intersport-deildinni vegna atburða sem áttu sér stað í leik Hamars/Selfoss og Snæfells sl. fimmtudag. Kært var fyrir ógnun eða árás á dómara. Aganefnd dæmdi Magna í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar reglugerðar aganefndar. Einnig var tekin fyrir kæra á hendur Kerbrell Brown leikmanni Skallagríms í Intersport deildinni vegna atburða sem áttu sér stað í leik Skallagríms og UMFG sl. fimmtudag. Kært var fyrir óprúðmannlega framkomu. Aganefnd dæmdi Brown í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar. Að lokum var tekin fyrir kæra á hendur Björgvini Karli Gunnarssyni leikmanni Hattar í 1. deild vegna atburða sem áttu sér stað í leik Þórs Ak. og Hattar sl. föstudag. Kært var fyrir óprúðmannlega framkomu. Aganefnd dæmdi Björgvin í eins leiks bann samkvæmt A-lið 4. greinar. Bönnin taka öll gildi frá og með hádegi nk. föstudag, 29. október. |