© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
7.10.2004 | 11:20 | bl
Intersport-deildin hefst í kvöld
Keppni í Intersport-deildinni hefst í kvöld með fimm leikjum. Á Selfossi verður í fyrsta sinn leikið í efstu deild karla í körfubolta þegar Hamar/Selfoss tekur á móti KR. Leikurinn er jafnframt fyrsti körfuboltaleikurinn í nýju og glæsilegu íþróttahúsi, Iðu, sem er íþróttahús Fjölbrautarskóla Suðurlands.

Í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi verður einnig tímamótaleikur þegar Fjölnir leikur sinn fyrsta leik í efstu deild, en mótherjar þeirra verða Haukar. Þetta verður þó ekki fyrsti Intersport-deildar leikurinn í Grafarvogi, því sameiginlegt lið Vals og Fjölnis lék heimaleiki þar keppnistímabilið 2001-2002.

Aðrir leikir kvöldsins verða viðureignir nýliða Skallagríms og ÍR. UMFN tekur á móti KFÍ í Njarðvík og Tindastóll fær Íslandsmeistara Keflavíkur í heimsókn. Í 1. deild kvenna taka nýliðar Hauka á móti ÍS. Leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15.

Fyrstu umferð Intersport-deildarinnar lýkur með leik UMFG og deildarmeistara Snæfells annað kvöld.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá 40 ára afmælishófi KKÍ 25. febrúar 2001.  Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, með formanni ritnefndar sögu KKÍ, Gunnari Gunnarssyni, og ritstjóra bókarinnar, Skapta Hallgrímssyni.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið