© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
30.9.2004 | 11:44 | bl
Dómaranámskeið í Þorlákshöfn á laugardag
Dómaranámskeið í körfuknattleik verður haldið í Þorlákshöfn laugardaginn 2. október og hefst kl. 9:00. Það eru körfuknattleiksnefnd HSK og dómaranefnd KKÍ sem standa að námskeiðinu.

Námskeiðið verður haldið í Grunnskólanum í Þorlákshöfn og eftir hádegi fer kennsla fram í íþróttahúsinu á staðnum, en þátttakendur munu dæma og fá leiðsögn í dómgæslu á fjölliðamóti sem fram fer í Þorlákshöfn á laugardag. Þátttakendur taka skriflegt próf og þeir sem standast það fá fullgilt dómaraskírteini.

Þau félög sem taka þátt í Íslandsmótum og héraðsmótum verða að hafa dómara í sínum röðum með próf og því er nauðsynlegt að félögin sendi fólk á námskeiðið.

Umsjónarmaður með námskeiðinu að hálfu KKÍ verður Aðalsteinn Hjartarson úrvaldsdeildardómari og fyrrum FIBA-dómari. Þátttökugjald er kr. 4.000 á mann.

Hægt er að nálgast hér til vinstri á vefnum undir "Leikreglur". Mikilvægt er að þátttakendur lesi reglurnar áður en námskeiðið hefst.

Skráningar verða að berast til skrifstofu HSK fyrir kl. 12:00 föstudaginn 1. október nk. Netfang hsk@hsk.is og sími 482 1189.

Það er von körfuknattleiksnefndar HSK og dómaranefdar KKÍ að þátttaka verði góð og allir eru velkomnir.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Hinn lipri leikmaður ÍR, Björn Ottó Steffensen, tekur létt ballettspor í leik gegn Val í Seljaskóla um miðjan níunda áratuginn. Leifur Gústafsson Val og Hjörtur Oddsson ÍR fylgjast með. Aðeins sést í leikmann nr. 13 hjá Vla, en það er Tómas Holton.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið