
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
| 1 | 2 | 3 | 4 | |||
| 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 
| 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 
| 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 
| 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 
| 18.9.2004 | 12:09 | bl "Torfi bróðir" stjórnar stuðningsmannasveitinni   Torfi vakti landsathygli sl. vor með framgöngu sinni með skeifuna góða á leikjum Snæfells-liðsins. Torfi, sem er bróðir Hlyns Bæringssonar landsliðmanns, lætur ekki sitt eftir liggja á leikjum og lætur heyra vel í sér og hvetur aðra áhorfendur óspart til að gera slíkt hið sama. Þess má geta að Torfi var mættur í Velby Risskov-höllina í Århus sl. föstudagskvöld til að hvetja íslenska liðið til dáða. Að sögn Torfa er meiningin að skapa skemmtilega stemmningu og hvetja íslenska liðið til dáða í þessum mikilvæga leik. Torfi sagðist einnig vonast til þess að húsfyllir yrði í Keflavík og áhorfendur tækju vel undir með stuðningsmannasveitinni. Forsala aðgöngumiða á leikinn er á Select-stöðvunum við Birkimel og Vesturlandsveg, sem og í íþróttahúsinu í Keflavík. Verð miða í forsölu er 500 kr. fyrir börn og 1.000 kr. fyrir fullorðna. Verðið á leikdag er 1.500 kr. fyrir fullorðna og 700 kr. fyrir börn. Á leikdag er miðasalan í íþróttahúsinu í Keflavík. mt: Torfi bróðir með lukkuskeifuna góðu á heimaleik hjá Snæfelli sl. vor. |