© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
13.8.2004 | 19:54 | hbh
Naumt tap gegn Dönum
Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik staðan jöfn í upphafi 9-9, en Danir sigu frammúr og komust í 9-16. Íslensku stelpurnar tóku þá við sér og minnkuðu muninn í 13-20 þegar Birna Valgarðsdóttir skoraði 3ja stiga körfu og komust svo í 17-20 áður en Danir skoruðu flautukörfu í lok fyrsta fjórðungs, sem endaði 17-22. Barningurinn hélt áfram Erla Reynisdóttir skoraði 3ja stiga körfu og jafnaði í 22-22. Síðan var jafnt var á öllum tölum og Alda Leif jafnaði á lokasekúndum fyrri hálfleiks 38-38.
Síðari hálfleikur byrjaði stórvel hjá íslensku stelpunum sem spiluðu fantagaóða vörn og stálu 4 boltum á stuttum kafla og komust í 48-40. Erla Þorsteins skoraði 3ja stiga körfu og breytti stöðunni í 51-42 og Alda Leif setti annan þrist og kom íslenska liðinu í 12 stiga forskot 54-42. Danir skoruðu svo 11 stig gegn 2 íslenska liðsins í lok fjórðungsins sem endaði 60-53 fyrir Ísland. Íslenska liðið skoraði fyrstu körfu síðasta fjórðungsins en Danir minnkuðu muninn í 62-59, Birna setti svo niður þrist og íslenska liðið var komið með vænlega stöðu 65-59 þegar 4:30 voru eftir af leiknum. Þá hrökk allt í baklás hjá íslensku stelpunum, boltinn vildi alls ekki fara ofan í körfuna hvort sem skotin komu úr auðveldum færum eða erfiðum. Danir skoruðu hinsvegar mikið inn í teig og úr vítum 15 stig í röð og breyttu stöðunni í 65-74.Á þessum tíma voru dæmdar tvær sóknarvillur á Helenu Sverrisdóttur og hún þurfti að yfirgefa völlinn með 5 villur er 2 mínútur voru eftir af leiknum. Síðasta orðið átti svo Erla Reynis úr þriggja stiga skoti og leikurinn endaði 68-76 fyrir Danmörk.
Ívar Ásgrímsson þjálfari var svekktur að íslenska liðið náði ekki að sigra og tryggja sér þriðja sætið í mótinum; "Það er gríðarlega sárt að tapa þessum leik. Stelpurnar börðust mjög vel og við vorum að spila okkar besta leik í mótinu. Við fengum mjög hæpnar villur dæmdar á okkur í lokin og Danirnir unnu leikinn á vítalínunni í lokin. Ég er mjög stoltur af stelpunum í þessum leik og við vorum óheppin að landa okkur öðrum sigri í mótinu."
Stigin: Helena Sverrisdóttir 14, Erla Þorsteinsdóttir, Signý Hermannsdóttir 12, Birna Valgarðsdóttir 12, Alda Leif Jónsdóttir 8 og Erla Reynisdóttir 8.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Bekkjarlið 5. b í Fellaskóla sigraði í fyrsta Landsbankamóti ÍR í minnibolta 1983, en mótið var milli 5. bekkja í Breiðholti. Frá vinstri, Kjartan G. Björnsson, Grétar V. Grétarsson, Hermann Hauksson, Börkur Jakobsson, Gunnar Þór Arnarson og Rúnar Þ. Guðmundsson. Fyrir aftan stendur þjálfari drengjanna og íþróttakennari, Sigvaldi Ingimundarson. Sem kunnugt er varð einn þessara drengja, Hermann Hauksson; landsliðsmaður í körfubolta.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið