S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
9.8.2004 | 13:36 | bl
Aukinn áhugi á Evrópumótum yngri landsliða
Alls horfðu 250 þúsund Ísraelsmenn á leiki U-20 ára landsliðsins í mótinu og 8,3% áhorf var á úrslitaleikinn. Leikir í mótinu voru þar að auki sendir út til Tékklands og Litháen. Þá sýndi spænska ríkissjónvarpið beint frá leikjum spænska landsliðsins í úrslitum Evrópumóts karla U-18 ára. Spánverjar sigruðu Tyrki 89-71 í úrslitaleik mótsins. Úrslitaleikurinn, sem fram fór á sunnudagskvöldi í Zaragoza dró að sér 500 þúsund sjónvarpsáhorfendur, sem er 5% áhorf. Þá hefur verið hægt að nálgast upptökur frá völdum leikjum í mótunum á vef FIBA Europe og hafa nokkur þúsund manns sótt þá fimm leiki sem þar voru í boði. Nar Zanolin framkvæmdastjóri FIBA Europe, er himinlifandi með þá umfjöllum og móttökur sem mótin hafa fengið. |