© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.8.2004 | 9:52 | bl
Magnús með 32 stig í ósigri Íslands
Pólverjar náðu að hefna fyrir ósigurinn gegn Íslendingum í Stykkishólmi á laugardaginn, þegar þeir sigruðu landann 85-75 í Keflavík í gærkvöldi. Leikurinn var jafn nánast allan tímann, en slæmur leikkafli í 3. fjórðungi gerði útslagið.

Magnús Þór Gunnarsson átti stórleik í íslenska liðinu, en hann skoraði 32 stig á 31 mínútu. Hlynur Bæringsson tók 10 fráköst, skoraði 6 stig og gaf 5 stoðsendingar á 25 mínútum.

Pólverjar notuðu sömu fimm leikmenn nánast allan síðari hálfleikinn og þeirra hávöxnu miðherjar þurftu að verma varamannabekkinn. Þetta gerði pólski þjálfarinn til að bregðast við leik íslenska liðsins, en stóru mennirnir hjá Pólverjum áttu í miklu basli með okkar menn í fyrstu tveimur leikjunum. Pólska þjálfaranum var greinilega mikið í mun að vinna þriðja leikinn, en liðið hvu vera undir mikilli pressu heima fyrir. Ekki bætti tapleikur í Íslandsheimsókninni þar um.

Sigurður Ingimundarson þjálfari íslenska liðsins hélt uppteknum hætti og skipti mikið inná. Hann leyfði öllum leikmönnum sínum að spreyta sig að þessu sinni. Halldór Örn Halldórsson úr Keflavík lék 3 mínútur í 3. fjórðungi í sínum fyrsta A-landsleik. Þá kom Jakob Örn Sigurðarson á ný inn í liðið og átti hann fínan leik þær 11 mínútur sem hann lék.

Tölfræði leiksins
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Landslið karla sem lék í C riðli Evrópukeppninnar í Sion í Sviss í apríl 1981. Aftari röð frá vinstri: Agnar Friðriksson fararstjóri, Kristinn Stefánsson aðstoðarþjálfari, Steinn Sveinsson fararstjóri, Torfi Magnússon Val, Símon Ólafsson Fram, Pétur Guðmundsson Val, Jónas Jóhannesson Njarðvík, Valur Ingimundarson Njarðvík, Gísli Gíslason ÍS og Einar Bollason þjálfari. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Þorvarðarson Njarðvík, Jón Sigurðsson KR, Kristinn Jörundsson ÍR, Ríkharður Hrafnkelsson Val, Ágúst Líndal KR og Kristján Ágústsson Val.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið