S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
31.7.2004 | 18:04 | Jon Halldor
U16 liðið sigraði Eista
Stelpurnar í U16 gerðu sér lítið fyrir og sigruðu gestgjafa Eista 76 - 73 á Evrópumóti U16 landsliða í Eistlandi. Íslenska liðið náði fljótt forystu en eistneska liðið náði að vinna sig inni leikinn í lok fyrri hálfleiks með stuðningi um 1000 áhorfenda. Síðari hálfleikur var að mestu í járnum. Undir lokin var jafnt á flestum tölum en stelpurnar stóðust geysilegt álag og náðu að landa stórgóðum sigri með yfirveguðum leik á síðustu sek. Liðið hefur nú unnið 2 fyrstu leiki sína á mótinu. Það má með sanni segja að íslenska liðið er að koma á óvart í þessu móti.
Stigahæstu leikmenn: Helena Sverrisdóttir 21 stig, Ingibjörg Vilbergsdóttir 17 stig, María Ben Erlingsdóttir 16 stig og Bryndís Guðmundsdóttir 12. Næsti leikur er á morgun en þá verður leikið á móti enn einni stórþjóðinni í körfubolta en þá mætir íslenska liðið Litháum. Kveðja frá stelpunum í Eistlandi. |