© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
28.7.2004 | 13:10 | Óskar Ó. Jónsson
Ekki gengid nægilega vel gegn gestgjöfunum - Birna í 50 leiki
Íslenska kvennalandsliðið spilar í kvöld, klukkan 18.30 að íslenskum tíma annan leik sinn á Promotion Cup í Andorra. Mótherjar íslenska liðsins í kvöld er heimastúlkur í liði Andorra en þær hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu. Þetta er í sjötta sinn sem íslenska liðið mætir gestgjöfunum á Promotion Cup og sigrarnir eru aðeins 2 í 5 leikjum.

Leikir íslenska kvennalandsliðsins gegn gestgjöfunum á Promotion Cup í gegnum tíðina:
1989 Lúxemborg 52-73 tap
1991 Gíbraltar 76-49 sigur
1993 Kýpur 51-57 tap
1996 Malta 92-50 sigur
1998 Austurríki 45-65 tap
2002 Andorra mættum ekki gestgjöfunum
2004 Andorra Í kvöld klukkan 18.30

Íslenska landslidid hefur tvisvar sinnum mætt liði Andorra. Á Promotion Cup á Möltu 1996 vann Ísland 61 stigs sigur, 100-39 en munurinn var adeins 16 stig þegar þjóðirnar mættust í æfingaleik fyrir Promotion Cup 2002. Ísland vann þann leik 76-60.

Þetta verdur sögulegur leikur fyrir einn leikmanna íslenska lidsins því Birna Valgardsdóttir verður í kvöld þriðja íslenska konan sem nær að spila 50 leiki fyrir íslenska kvennalandsliðið í körfubolta. Birna er jafnframt ein af fjórum leikmönnum sem hafa náð að spila meira en helming landsleikja Íslands frá upphafi en leikurinn í kvöld er númer 91.

Flestir landsleikir fyrir Íslands hönd:
Fyrir leikinn gegn Andorra í kvöld.
Anna María Sveinsdóttir 56
Guðbjörg Norðfjörð 53
Birna Valgarðsdóttir 49
Helga Þorvaldsdóttir 48
Kristín Blöndal 45
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Jón Arnór Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins, gægist hér framhjá tveimur varnarmönum hollenska liðsins í leik liðanna í ágústmánuði 2009. Hollendingar reyndu að klófesta íslenska liðið en höfðu ekki erindi sem erfiði enda vann Ísland góðan sigur 87-75 eftir að hafa leitt með allt að 28 stigum. Jón Arnór var stigahæstur allra leikmanna á vellinum mdð 23 stig.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið