S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
5.6.2015 | 7:00 | Kristinn
Ekki fyrstu systurnar til að spila saman á Smáþjóðaleikum
Systurnar Sverrisdóttir og Guðbjörg Sverrisdætur eru í hópi íslenska kvennalandsliðsins á Smáþjóðaleikunum sem fara að þessu sinni fram á Íslandi. Helena Sverrisdóttir er fyrirliði liðsins og hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu í meira en tíu ár en yngri systir hennar á aðeins að baki einn landsleik. Guðbjörg Sverrisdóttir, sem er fjórum árum yngri en Helena, spilaði sinn fyrsta og eina landsleik í fyrrasumar en hún var þá þrettándi maður fyrir Evrópukeppni Smáþjóða í Austurríki. Leikirnir á Smáþjóðaleikunum í Laugardalshöllinni verða því fyrstu keppnisleikir þeirra systra saman en þær hafa spilað einn landsleik saman. Guðbjörg, sem hefur spilað 50 landsleikjum færra en stóra systir, spilaði sinn eina landsleik á móti Dönum í Stykkishólmi í fyrrasumar. Systurnar voru þá með 35 stig í naumu tapi eftir framlengingu. Helena var reyndar með 30 af þessum 35 stigum auk þess að taka 9 fráköst, gefa 6 stoðsendingar og stela 5 boltum. Guðbjörg skoraði 5 stig á 8 mínútum og hitti úr báðum skotum sínum. Þær Helena og Guðbjörg verða þó ekki fyrstu systurnar til að spila saman í körfuboltalandsliðinu á Smáþjóðaleikum. Það kom í hlut þeirra Sigrúnar Sjafnar og Guðrúnar Óskar Ámundadætra frá Borgarnesi á Smáþjóðaleikunum á Kýpur árið 2009. Guðrún Ósk náði ekki að skora í leikjunum þremur og því geta þær Helena og Guðbjörg orðið fyrstu systurnar sem skora báðar í leik með íslenska kvennalandsliðinu á Smáþjóðaleikum. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er í íslenska landsliðshópnum á Smáþjóðaleikunum í ár en Guðrún Ósk hefur ekki spilað með landsliðinu frá árinu 2009. |