S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
1.7.2004 | 14:42 | Óskar Ó. Jónsson
Þrír lærdómsríkir leikir að baki við Belga
Undir greinum hér á KKÍ-síðunni má finna þrjár samantektir upp úr tölfræði íslenska liðsins í leikjunum gegn Belgum. Þetta er ítarlegri tölfræði en sú sem kemur fyrir í hinni venjubundinni tölfræði leikjanna sem má finna hér. 1 Fyrst er almennt yfirlit yfir helstu tölfræðiþætti bæði hjá liðunum og leikmönnum og þar má sjá Hlyn Bæringsson skara framúr á mörgum sviðum hjá íslenska liðinu. Þá grein má finna hér. 2 Í öðru lagi er yfirlit yfir gengi íslenska landsliðsins í þessum leikjum þegar ákveðnir leikmenn voru inná vellinum. Þetta hefur verið kallað Plús/mínús-tölfræði í Bandaríkjunum og er ein leið til að fá út meiri upplýsingar um hvaða áhrif ákveðinn leikmaður hefur á leik síns liðs burt séð frá því hverju hann skilar í stigum, fráköstum og stoðsendingum eða öðrum almennum tölfræðiþáttum sem eru teknir saman. Hér má einnig sjá hvenær sóknin gengur best og hvenær vörnin gengur best þegar ákveðnir leikmenn eru inná. Þá grein má finna hér. 3 Í þriðja og síðasta lagi ef yfirlit yfir samvinnu íslensku strákanna það er á hverja þeir eru að senda stoðsendingarnar og hversu margar körfur eru skoraðar eftir einstaklingsframtak.Þá grein má finna hér. |