© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
   
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
8.5.2004 | 9:39 | rg
Áfram 10 lið í dönsku Basketligaen
Danir hafa gefið út, líkt og Norðmenn, hvaða lið muni leika í Basketligaen á næsta ári. Í Danmörku þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að fá að taka þátt og að þessu sinni voru 10 lið sem hlutu náð fyrir stjórn deildarinnar. 11 lið hófu leik í deildinni í haust en BF Copenhagen varð gjaldþrota í október og eftir það léku 10 lið í deildinni. Það verður því sami fjöldi næsta vetur.
Eitt nýtt nafn kemur inn en það er lið BK Amager en lið Skjold/Stevensgade var hafnað. BK Amager sigraði í 1. deild og hlaut þar með rétt til að sækja um þátttöku í Basketligaen. Skjold/Stevensgade varð hins vegar næst neðst í Basketligaen en rekstur félagsins hefur verið erfiður undanfarið og er það talið ástæðan fyrir að þeirra umsókn var hafnað.
Í deildinni verða á næsta ári Bakken Bears (Skovbakken), Horsens IC, Randers, Åbyhøj, Ålborg, Svendborg, SISU, Team Sjælland, Hørsholm og BK Amager.
Ísak Einarsson lék með Ålborg í vetur en KKÍ veit ekki að svo stöddu hvort hann leikur þar næsta vetur.

Þá hefur stjórn Dameligaen gefið út hvaða lið muni leik í kvennadeildinni næsta ár, en það eru sömu átta liðin og léku síðasta ár, Hørsholm, Virum, SISU, Skjold/Stevensgade, Glostrup, Falcon, BK Amager og Vitus Bering Pirats
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Njarðvíkingar urðu Íslandsmeistarar karla 1998 eftir úrslitaeinvígi við KR. Aftari röð frá vinstri, Brynjar Ásmundsson vatnsberi, Gunnar Þorvarðarson formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Einar Árni Jóhannsson aðstoðarþjálfari, Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari, Örvar Kristjánsson, Kristinn Einarsson, Páll Kristinsson, Petey Sessoms, Ægir Gunnarsson, Sævar Garðarsson, Sara Guðmundsdóttir sjúkraþjálfari og Bjarni Bragason vatnsberi. Fremri röð frá vinstri: Teitur Örlygsson með dóttur sína Ernu Lind í fanginu, Guðjón Gylfason, Ragnar Ragnarsson, Friðrik Ragnarsson, Logi Gunnarsson og Örlygur Sturluson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið