
| S | M | Þ | M | F | F | L | 
1  | 
	||||||
2  | 
		3  | 
		4  | 
		5  | 
		6  | 
		7  | 
		8  | 
	
9  | 
		10  | 
		11  | 
		12  | 
		13  | 
		14  | 
		15  | 
	
16  | 
		17  | 
		18  | 
		19  | 
		20  | 
		21  | 
		22  | 
	
23  | 
		24  | 
		25  | 
		26  | 
		27  | 
		28  | 
		29  | 
	
30  | 
		
| 
 29.4.2004 | 17:37 | bl 
  Sjálfkjörið í stjórn KKÍ á þinginu um helgina 
   
    Fyrir komandi þingi KKÍ, sem haldið verður á Selfossi um helgina, liggur fyrir listi um framboð, og er á grundvelli laganna sjálfkjörið í þær stöður innan stjórnar KKÍ. Aðalmenn í stjórn eru kjörnir til tveggja ára í senn, og er helmingur aðalmanna í kjöri hverju sinni. Varamenn í stjórn eru kjörnir til eins árs í senn. Með hliðsjón af framangreindu mun stjórn KKÍ á næsta starfsári líta þannig út: Formaður: Ólafur Rafnsson Meðstjórnandi: Hannes S. Jónsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Gísli Páll Pálsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Jón Halldórsson (er á síðara ári) Meðstjórnandi: Gísli Georgsson Meðstjórnandi: Bjarni Gaukur Þórmundsson Meðstjórnandi: Eyjólfur Guðlaugsson Varamaður: Hrannar Hólm Varamaður: Svali Björgvinsson Varamaður: Guðbjörg Norðfjörð Stjórn KKÍ mt: Ólafur Rafnsson býður sig fram til áframhaldandi setu á formannsstóli KKÍ næstu tvö árin.  |