S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
23.4.2004 | 16:00 | bl
Íþróttaþing ÍSÍ haldið um helgina
Íþróttaþing ÍSÍ er æðsti vettvangur íslenskrar íþróttahreyfingar. Meðal mála sem rædd verða á Íþróttaþingi er tillaga um stofnun sérsambands um íshokkýíþróttina, tillaga um sameiginlega skiptingu lottótekna ÍSÍ og UMFÍ, ályktunartillaga um tölvu- og upplýsingakerfi íþróttahreyfingarinnar, áskorun til sveitarfélaga um fyrirmyndarfélag ÍSÍ og ályktun um sérsamböndin og fjárlög Alþingis. Rekstur ÍSÍ var í góðu jafnvægi á síðasta ári. Velta sambandsins skv. samstæðureikningi nam 344 milljónum króna og rekstrarhagnaður var um 2,7 milljónir króna. Óráðstafað eigið fé ÍSÍ, um síðustu áramót, var 310 milljónir króna. Ellert B. Schram forseti ÍSÍ gefur kost á sér til undurkjörs í embætti í síðasta sinn. Hann mun því láta af því embætti á næsta íþróttaþingi eftir tvö ár, verði hann kjörinn nú. |