© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
31.3.2004 | 11:00 | bl
Pétur Hrafn á förum frá KKÍ
Á stjórnarfundi Körfuknattleikssambands Íslands í fyrradag tilkynnti undirritaður stjórn sambandsins að framkvæmdastjóri KKÍ, Pétur Hrafn Sigurðsson, hafi beðist lausnar frá störfum vegna nýs starfstækifæris.

Pétur Hrafn hefur ekki bara lengstan - heldur langlengstan - starfsaldur nokkurs starfsmanns sérsambands innan íþróttahreyfingarinnar, en hann hóf störf á skrifstofu Körfuknattleikssambandsins árið 1987 eða fyrir 17 árum síðan.

Það er mikill missir fyrir íslenska körfuknattleikshreyfingu að einstaklingur með svo víðtæka reynslu og þekkingu á innviðum hreyfingarinnar hverfi á braut, en hinsvegar mun Pétur Hrafn ekki fara langt þar sem honum hefur verið boðið starf sölustjóra Íslenskra Getrauna, sem staðsett er í sama húsi.

Íslensk körfuknattleikshreyfing stendur í þakkarskuld við Pétur Hrafn, enda hefur hann reynst einstaklega farsæll og vinsæll í sínum störfum. Nýtur hann virðingar fyrir störf sín bæði hérlendis og erlendis. Óskar stjórn sambandsins honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Fyrir undirritaðan er ljóst að náinn samstarfsfélagi til 14 ára hverfur nú á braut, en hann mun án efa halda áfram að gegna trúnaðarstörfum beint eða óbeint í þágu körfuknattleikshreyfingarinnar um sinn, auk þess að sinna störfum og verkefnum í þágu KKÍ út keppnistímabilið.

Stjórn KKÍ mun innan tíðar auglýsa stöðu framkvæmdastjóra sambandsins lausa til umsóknar.

f.h. stjórnar KKÍ,
Ólafur Rafnsson,formaður.

Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá æfingaleik Íslands og Hollands í Groningen í Hollandi í ágúst mánuði 2005. Liðin mættust tvisvar sinnum og vann Ísland báða leikina. Þann fyrri 74-78 og þann seinni 75-82.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið