S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
22.3.2004 | 15:10 | bl
Sagan ekki með Njarðvíkingum
Ef Njarðvíkingar ætla að komast áfram í úrslitin um Íslandsmeistaratitilinn verða þeir að sigra í næstu þremur leikjum sínum við Snæfell og þar með að brjóta blað í sögu úrslitakeppninnar. Lið sem hefur verið 2-0 undir í undanúrslitum hefur aldrei komið til baka og náð að sigra í sögu keppninnar, sem hófst fyrst árið 1984. Önnur merkileg staðreynd varðandi úrslitakeppnina í ár er sú að aldrei áður í sögu keppninnar hafa liðin frá Reykjanesbæ, Keflavík og Njarðvík, hvorugt haft heimaleikjarétt í undanúrslitum. |