© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
16.3.2004 | 0:27 | Óskar Ó. Jónsson
Fjölnir tryggði sér sæti í Intersportdeildinni
Fjölnir tryggði sér í kvöld sæti í Intersportdeildinni á næsta ári þegar liðið vann annan leikinn gegn Val með 26 stigum, 79-105, í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla. Fjölnir vann fyrri leikinn á heimavelli sínum í Grafarvogi á laugardaginn, 82-74, og bætti svo um betur á Hlíðarenda í kvöld. Fjölnir hefur aldrei leikið í efstu deild á Íslandi í boltaíþrótt en Valur og Fjölnir léku reyndar undir sameiginlegum merkjum í úrvalsdeildinni 2001 til 2002.

Skallagrímur og Ármann/Þróttur leika annan leikinn í Laugardalshöllinni annað kvöld en Skallagrímur vann þar fyrsta leikinn í Borgarnesi, 104-61, og fylgir Fjölni upp í Intersportdeildina vinni liðið annan leikinn í Höllinni.

Þeir Jason Harden og Halldór Gunnar Jónsson, leikmenn Fjölnis, náðu því afreki að fara upp í úrvalsdeild annað árið í röð en í fyrra léku þeir með liði Þórs úr Þorlákshöfn sem tryggði sér þá sæti í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn. Halldór Gunnar lék í byrjun tímabilsins með Selfossi, sem féll á dögunum niður í 2. deild, og því má segja að Halldór hafi á sama tímabil bæði farið upp úr og niður úr 1. deildinni.
Tölfræði Þórsliðsins sem fór upp úr 1.deild karla í fyrra má finna hér og tölfræði Fjölnisliðsins má finna hér.

Fjölnir verður 22. félagið til að spila í úrvalsdeild karla í 25 ára sögu deildarinnar en úrvalsdeildin var sett á laggirnar haustið 1978. Aðeins tvö félög, KR og Njarðvík, hafa verið með öll 25 tímabilin og fjögur af 21 félagi hafa aðeins verið í deildinni eitt tímabil.

Félög í sögu úrvalsdeildar:
Fyrsta tímabil úrvalsdeildar
Valur 1978-79
KR 1978-79
Njarðvík 1978-79
ÍR 1978-79
ÍS 1978-79
Þór Ak. 1978-79
Þessi hafa bæst í hópinn síðan
7. Fram 1979-80
8. Ármann 1980-81
9. Keflavík 1982-83
10. Haukar 1983-84
11. Grindavík 1987-88
11. Breiðablik 1987-88
13. Tindastóll 1988-89
14. Reynir S. 1989-90
15. Snæfell 1990-91
16. Skallagrímur 1991-92
17. ÍA Akranes 1993-94
18. KFÍ 1996-97
19. Hamar 1999-2000
20. Stjarnan 2001-02
21. Þór Þ. 2003-04
22. Fjölnir 2004-05
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá matarboði ritnefndar Sögu KKÍ, í mars 2001.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið