S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
14.3.2004 | 1:31 | Óskar Ó. Jónsson
Grindavík og Haukar þurfa að sigra söguna til að fá oddaleik
Grindavík sækir KR heim í DHL-höllina í Frostaskjóli en KR vann fyrsta leikinn í Grindavík á föstudagskvöldið, 95-99. Þetta er aðeins í áttunda sinn í sögu átta liða úrslita úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar sem lið "stelur" heimavallaréttinum og vinnur fyrsta leik á útivelli. Í öll hin sjö skiptin hefur einvígið klárast í næsta leik, það er liðið sem vinnur fyrsta leik á útivelli hefur unnið sinn heimaleik og klárað einvígið 2-0. KR-ingar lentu einmitt síðastir liða í þessu gegn Njarðvík í fyrra en þeir unnu einmitt Tindastóll á sama hátt á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum árið 2000. Einvígi þar sem útilið vinnur fyrsta leik í átta liða úrslitum: 1995 ÍR-Skallagrímur 84-86 2. leikur Skallagrímur-ÍR 98-73 (2-0) 1997 ÍA-KR 67-81 2. leikur KR-ÍA 99-75 (2-0) 1997 Haukar-Njarðvík 83-88 2. leikur Njarðvík-Haukar 94-85 (2-0) 1998 Haukar-Keflavík 78-84 2. leikur Keflavík-Haukar 89-76 (2-0) 2000 Tindastóll-KR 78-81 2. leikur KR-Tindastóll 78-70 (2-0) 2002 Tindastóll-Grindavík 82-92 2. leikur Grindavík-Tindastóll 83-63 (2-0) 2003 KR-Njarðvík 87-90 2. leikur Njarðvík-KR 97-95 (2-0) 2004 Grindavík-KR 95-99 2. leikur KR-Grindavík Í kvöld kl:19:15 Njarðvíkingar sækja Hauka heim á Ásvelli en Njarðvík vann fyrsta leikinn í Ljónagryjunni í Njarðvík með 39 stiga mun á föstudagskvöldið, 100-61. Þetta er aðeins í sjötta sinn í sögu átta liða úrslita úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar sem lið vinnur fyrsta leik með meira en 30 stigum og í öll skiptin hefur sama lið unnið seinni leikinn með meira en tíu stiga mun og klárað einvígið 2-0. Einvígi þar sem lið vinnur fyrsta leik með 30 stigum eða meira í átta liða úrslitum: 1997 Keflavík -ÍR 107-69 (+38) 2. leikur ÍR-Keflavík 79-92 (+13, 0-2) 1997 Grindavík-Skallagrímur 111-68 (+43) 2. leikur Skallagrímur-Grindavík 66-80 (+14, 0-2) 1999 Keflavík-Haukar 123-81 (+42) 2. leikur Haukar-Keflavík 77-132 (+55, 0-2) 1999 Njarðvík-Snæfell 88-49 (+39) 2. leikur Snæfell-Njarðvík 67-100 (+33, 0-2) 2001 Keflavík-Hamar 103-69 (+34) 2. leikur Hamar-Keflavík 62-106 (+44, 0-2) 2004 Njarðvík-Haukar 100-61 (+39) 2. leikur Haukar-Njarðvík Í kvöld kl:19:15 Á þessu sést að vinni Grindavík og/eða Haukar leikina í kvöld þá verða það söguleg úrslit í tíu ára sögu 8 liða úrslita úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar. 2004 Deildarmeistari: Snæfell 8 liða úrslit: Snæfell 2-0 Hamar {99-86, 75-78} Grindavík 0-1 KR {95-99} Keflavík 1-1 Tindastóll {89-86, 98-81} Njarðvík 1-0 Haukar {100-61} Undanúrslit: Úrslitaeinvígi: Íslandsmeistari: ?????? |