S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
11.3.2004 | 13:19 | bl
Úrslitakeppnin hefst í kvöld
Snæfell tekur nú þátt í úrslitakeppninni í annað sinn. Liðið komst í keppnina árið 1999, en tapaði þá 2-0 gegn UMFN. Hamar hefur alltaf komist í úrslitakeppnina frá því félagið lék fyrst í efstu deild árið 2000 eða fjórum sinnum. Hins vegar hefur félaginu aldrei tekist að komast í undanúrslit. Hamar hefur unnið 2 leiki en tapað 8. Suðurnesjaliðin þrjú og KR hafa slegið Hamar út úr úrslitakeppninni. Keflavík tekur nú þátt í úrslitakeppninni í 19. sinn. Aðeins einu sinni hefur Keflavík mistekist að komast undanúrslit frá því 8-liða úrslitakeppni var tekin upp árið 1995. Það var árið 2000 þegar UMFG sló Keflavík út. Þá hefur félagið leikið 10 sinnum til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Keflavík á að baki 72 sigurleiki í úrslitakeppninni. Tindastóll hefur 7 sinnum áður tekið þátt í úrslitakeppninni. Félagið hefur tvívegis komist áfram í undanúrslit og einu sinni alla leið í úrslitaleikina. Það var árið 2001 er UMFN varð meistari með 3-1 sigri á Tindastól. Tindastóll á að baki 11 sigurleiki í úrslitakeppninni. |