S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
8.3.2004 | 20:27 | bl
Bikarmeistarar UMFN í 9. flokki karla
Neðri röð frá vinstri: Ragnar Ólafsson, Rúnar Ingi Erlingsson, Elías Kristjánsson, Ólafur Valdimar Ólafsson, Friðrik Guðni Óskarsson og Hjörtur Hrafn Einarsson. Njarðvík vann 39 stiga sigur á Snæfelli, 84-45 í bikarúrslitaleik 9. flokks karla og uppskar því loksins gull eftir að félagið þurfti að sætta sig við þrjú silfurverðlaun daginn áður. Nokkrir leikmanna Njarðvíkurliðsins höfðu verið með í báðum tapleikjum liðsins á laugardeginum. Snæfell hélt í við Njarðvík í upphafi leiks en í stöðunni 15-14 skoruðu Njarðvíkingar 14 stig í röð og voru komnir í 24 stiga forustu í hálfleik, 45-21. Ragnar Ólafsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 20 af 30 stigum í fyrri hálfleik þar af 16 þeirra í 30-7 endaspretti liðsins fyrir hlé. Ragnar var auk þess með 7 fráköst og 7 stoðsendingar og nýtti 14 af 22 skotum sínum í leiknum. Hjörtur Hrafn Einarsson átti mjög góðan alhliða leik, skoraði 19 stig, gaf 8 stoðsendingar, tók 7 fráköst og stal 6 boltum án þess að tapa einum einasta bolta og hann nýtti skotin sín líka 53%. Þá skoraði Elías Kristjánsson 14 stig, Friðrik Óskarsson gerði 10 og fyrirliðinn Rúnar Ingi Erlingsson var með 7 stig og 7 stoðsendingar. Hjá Snæfelli skoraði Björgvin Valentínusarson 10 stig og tók 15 fráköst að auki, Gylfi Rögnvaldsson var með 8 stig og Atli Rafn Hreinsson skoraði 6 stig, tók 6 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. |