© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
         
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.3.2004 | 16:12 | rg
Leifur leggur FIBA flautuna á hilluna
Það er mikið að gerast í dómaraheiminum þessa dagana, fyrr í vikunni lýsti Helgi Bragason yfir að hann hyggðist leggja FIBA flautuna á hilluna og nú hefur Leifur S. Garðarsson fylgt í kjölfarið. Leifur tók við krefjandi og tímafreku starfi sem skólastjóri Áslandsskóla fyrir rúmu ári síðan sem á ekki samleið með löngum fjarverum erlendis vegna dómgæslu.

Leifur tók FIBA prófið á Rimini á Ítalíu árið 1993 og fyrsta verkefni hans á vegum FIBA var að dæma 2 leiki í Belgíu í september 1994, fyrst leik Region Wallone Charleroi og Ulker SC Istanbul frá Tyrklandi með Boris Schmidt frá Þýskalandi. Til dagsins í dag hefur Leifur dæmt 37 leiki í Evrópukeppni félagsliða og farið í 9 mót á vegum FIBA auk annarra ferða með íslenskum liðum. Nú síðast var hann í Frakklandi þar sem hann dæmdi tvo leiki, einn í Evrópudeild karla og einn í Evrópdeild kvenna.

Hápunktar ferils Leifs eru þó annars vegar þegar hann dæmdi leik Real Madrid og Benfica á Spáni árið 1996 en Portúgalirnir sigruðu með 1 stigi, heimamönnum til lítillar gleði. Hinn hápunkturinn var svo þegar hann var útnefndur á námskeið fyrir 20 efnilegustu dómara í Evrópu 35 ára og yngri, en námskeiðið var haldið í Trevisio á Ítalíu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Frá stofnfundi Körfuboltaútgáfunnar ehf. sem gaf út tímaritið “Karfan” árið 1993.  Ólafur Johnson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Einar Bollason, Ólafur Rafnsson, Hannes Ágúst Guðmundsson, Haukur Hauksson, Sverrir Sverrisson og Björn Leósson.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið