© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
9.2.2004 | 11:48 | bl
"Vesturstrandarúrslitin" næstu helgi
Um næstu helgi, 14.-15. febrúar, mun KKÍ standa fyrir skemmtilegu körfuboltamóti sem kallast "Vesturstrandarúrslitin". Þar sem bestu lið "vesturstrandarinnar" leiða saman hesta sína. Þá mun NBA leikmaður kíkja í heimsókn, en Jón Arnór Stefánsson, leikmaður Dallas Mavericks, verður
sérlegur gestur mótsins.

Jón mun skrifa eiginhandaráritanir og spjalla við þátttakendur um lífið og tilveruna í NBA-deildinni. Þá mun Jón gefa einum
heppnum þátttakanda keppnistreyju sína hjá Dallas. Allir þátttakendur fá risaplakat af Jóni í leik með Dallas.

Keppt verður í hinum ýmsu þrautum og eiga þátttakendur möguleika á því að vinna áritaðar keppnistreyjur leikmanna Dallas Mavericks á borð við Dirk
Nowitzki, Steve Nash og Michael Finley.

Mótið fer fram í íþróttahúsi Bessastaðahrepps á laugardeginum (14. feb.) og sunnudeginum (15.feb.) í KR-heimilinu og er fyrir eftir eftirtalda
aldurshópa:

Laugardagur, 14. febrúar (íþróttahús Bessastaðahrepps)
14.00-15.30 Strákar og stelpur í 7. flokki
15.40-17.10 Strákar og stelpur í Minnibolta
17.20-18.50 Strákar í 8. flokki

Sunnudagur, 15. febrúar (KR-heimilið)
09.00-10.30 Strákar og stelpur í 7. flokki
10.40-12.10 Strákar og stelpur í Minnibolta
12.20-13.50 Strákar í 8. flokki

Þáttökugjald er 2900- og er innifalið í því risaplakat af Jóni Arnóri
Stefánssyni. Hægt er að skrá sig á skrifstofu KKÍ í síma 514-4100 eða senda póst á petur@kki.is
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Dómarar og leikmenn hlýða á íslenska þjóðsöngin fyrir úrslitaleik Subwaybikars kvenna en KR og Keflavík mættust í leiknum og sigruðu KR-konur 60:76
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið