© 2000-2024 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
5.2.2004 | 10:26 | bl
Englendingar að gera það gott í Bandaríkjunum
England hefur átt afburða körfuknattleiksmenn í gegnum tíðina og nægir þar að nefna John Amaechi, Roger Huggins, Steve Bucknall og Andy Betts. Í dag eru nokkrir enskir strákar að gera það gott með toppliðum í bandaríska háskólaboltanum.

Luol Deng, sem fæddur er í Súdan en fluttist sem strákur til Englands, skoraði 22 stig fyrir Duke-háskóla um síðustu helgi. Duke, sem er í efsta sæti styrkleikalista bandarísku 1. deildar skólanna (NCAA Div.1), vann Georgie Teck 82-74,

Olu Babalola, sem kom til Íslands fyrir nokkrum árum með ACC Allstar og tók þátt í móti á vegum ÍT-ferða, skoraði 14 stig og tók 5 fráköst fyrir Clemson í 81-72 sigri á North Carolina (12. sæti).

Richard Midgley skoraði 17 stig í sigri California á erkifjendunum í PAC 10-deildinni, Oregon State, 88-74.

Þá gerði Kelenna Azubuike 12 stig og tók 7 fráköst fyrir Kentucky (sem er í 7. sæti styrkleikalistans) sem tapaði 60-66 fyrir Vanderbilt.

John Amaechi hefur leikið nokkur ár í NBA-deildinni og var á sínum tíma tekjuhæsti íþróttamaður Bretlands. Steve Bucknall var í læri hjá Dean Smith í North Carolina og lék síðan með félagsliðum í Evrópu. Huggins lék með háskólaliði á Hawaii og síðan með liðum á Englandi og Belgíu. Bett gekk í Long Beach State, en er nú að gera góða hluti með Tau Caramica á Spáni.


Mt: Olu Bablola leikur nú með Clemson háskóla.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Kristinn íþróttafulltrúi, Stefán mótastjóri og Ágúst landsliðsþjálfari kvenna draga í 32-liða úrslitum bikarkeppni yngriflokka haustið 2008
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið