© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
4.2.2004 | 11:11 | bl
Páll í leikbanni í bikarúrslitaleiknum
Páll Kristinsson leikmaður Njarðvíkur var dæmdur í eins leiks bann á fundi aganefndar KKÍ. Páll var sem kunnugt er rekinn af leikvelli í leik UMFN og Hamars sl. sunnudag fyrir ógnun eða árás á dómara leiksins. Páll mun taka bannið út í bikarúrslitaleik UMFN og Keflavíkur á laugardaginn kemur.

Á fundi aganefndar var einnig tekin fyrir kæra á hendur Julian Martinez þjálfara Þórs Ak. en hann fékk dæmda á sig brottrekstrarvillu fyrir óhæfileg mótmæli eða mótþróa við dómara í leik Fjölnis og Þórs sl. laugardag. Martinez var dæmdur í tveggja leikja bann, en hann hafði fyrr í vetur verið dæmdur í eins leiks bann af nefndinni.

Þá var Bjarni K. Árnason leikmaður Þórs Ak. dæmdur í eins leiks bann. Hann var rekinn af leikvelli í leik ÍG og Þórs sl. föstudag fyrir sérlega grófan leik eða ofbeldi.

Þessi bönn taka öll gildi frá og með hádegi föstudaginn 6. febrúar.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
8.-10. flokkur stúlkna hjá Val að undirbúa sig fyrir leik á móti í Gautaborg í Svíþjóð. Valur vann leikinn 26-24. Liðið komst í b-úrslit á mótinu en gat ekki spilað úrslitaleikinn þar sem að ferðaskrifstofa liðsins gerði ekki ráð fyrir að liðið færi svona langt. Stelpurnar þurftu því að halda heim til Íslands áður en mótið kláraðist.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið