© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
2.2.2004 | 9:45 | bl
Söguleg sextánda umferð
Suðurnesjaliðin Keflavík, Njarðvík og Grindavík töpuðu öll leikjum sínum í 16. umferð Intersport-deildarinnar í gærkvöldi og er það í fyrsta skipti í níu ár sem slíkt gerist í deildinni.

Keflavík tapaði fyrir Snæfelli í Stykkishólmi 94-90, Njarðvík tapaði heima fyrir Hamri, 73-90 og Grindavík tapaði fyrir Haukum í Hafnarfirði 89-79. Önnur úrslit í deildinni í gær voru þau að KFÍ vann Þór Þ. á Ísafriði, ÍR vann Breiðablik í Smárnum og Tindastóll vann KR á Sauðárkróki.

Með þessum úrslitum komst Snæfell í efsta sæti deildarinnar á kostnað Grindavíkur, sem hefur lakari innbyrðis stöðu gagnvart Snæfelli. Grindavík hafði haldið toppsætinum frá byrjun móts. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem Snæfell situr í efsta sæti deildarinnar, ef það hefur þá nokkurn tíman gerst áður. Sjá nánar úrslit og stöðuna í deildinni.

Níu ár eru liðin síðan suðurnesjaliðin töpuðu öll leikjum sínum í sömu umferðinni í deildinni. Það gerðist síðast í 2. umferð 1995, en þann 1. október það ár tapaði Keflavík fyrir ÍR í Seljaskóla, Grindvíkingar töpuðu fyrir Skallagrím í Borgarnesi og Njarðvíkingar töpuðu á heimavelli fyrir Tindastól.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Ágúst Herbert Guðmundsson, þáverandi þjálfari Þórs og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells ásamt Chuck Daly í Valencia árið 2000. 
Þeir félagar voru á þjálfaranámskeiði þar sem Daly, Ettore Mesina og tveir landsliðsþjálfarar Spánar héldu frábært námskeið. Myndin var tekin eftir einn fyrirlesturinn.
 
Chuck Daly lést 9. maí 2009, eftir baráttu við veikindi. Hann gerði meðal annars Detroit Pistons að meisturum tvö ár í röð og vann gullið mðe Draumaliðinu á Ólymíuleikunum í Barcelona 1992.
 
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið