S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
Shock Doctor styður A-landslið karla og kvenna
KKÍ og Scanco, umboðsaðili Shock Doctor á Íslandi, hafa gert samstarfssamning fyrir A-landslið karla og kvenna. Scanco og Shock Doctor munu útvega landsliðsmönnum Íslands stuðningshlífar, íþróttahlífar og munngóma fyrir æfingar og keppnir til næstu tveggja ára. Vörurnar frá Shock Doctor eru leiðandi á sínu sviði er kemur að íþróttahlífum og stuðningsfatnaði og hannaðar með það að markmiði að hámarka öryggi og frammistöðu þeirra sem nota vörurnar. Til að mynda fæst í línu Shock Doctor ný kynslóð munngóms fyrir íþróttamenn sem er minni og nettari en áður hefur þekkst og auðveldar hann leikmönnum að tala og anda og veitir hámarksvernd áfram fyrir tennur og munn. Það voru þeir Níels Páll Dungal, sölu- og markaðstjóri Scanco ehf., og Kristinn Geir Pálsson, umsjónarmaður landsliðsmála KKÍ, sem handsöluðu samstarfið fyrir hönd beggja aðila. Hægt er að sjá vörulínu Shock Doctor á vef þeirra www.shockdoctor.com. Allar nánari upplýsingar um vörunar og hvar þær má nálgast fást hjá Scanco, Sundaborg 5, 104 Reykjavík og í síma 777-0007. |