S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
26.1.2004 | 21:45 | rg
Óðinn Ásgeirsson í baráttunni í Noregi
Reglurnar í norsku deildinni eru nokkuð frábrugðnar þeim íslensku. Í Noregi skulu alltaf vera a.m.k. tveir norskir leikmenn inni á vellinum og ekki fleiri en tveir "kanar". Fimmti leikmaðurinn getur þá verið norskur eða frá öðru Evrópulandi. Þá geta líka verið allt að þrír leikmenn frá öðrum Evrópulöndum, en alltaf a.m.k. tveir Norðmenn. Í liði Óðins eru tveir "kanar", einn ameríkani með pólskt vegabréf, einn Júgóslavi og svo Óðinn. Það má því sjá að Óðinn fær ekki mikinn spilatíma en hann hefur verið að leika um 20 mínútur í leik í vetur og skora í kringum 10 stig í leik. Leikjafyrirkomulagið í Noregi er einnig töluvert flókið, minnir helst á fyrirkomulagið í íslenska handboltanum. Í norsku úrvalsdeildinni eru 8 lið sem léku 14 leiki hvert fyrir jól. Þá fóru 4 efstu liðin BL1 og 4 neðstu í BL2. Þar leik svo liðin tvöfalda umferð hvert við annað. Tvö efstu liðin í BL1 komast svo beint í undanúrslit en lið 3 og 4 spila við lið 1 og 2 í BL2 um sæti í úrslitakeppni og þarf að sigra tvo leiki til að komast í þau. Ulriken hóf tímabilið mjög vel og voru lengi í toppbaráttunni en gáfu eftir er líða fór að jólum og enduðu í þriðja sæti í deildinni og komust þar með í BL1, þar hafa þeir nú leikið þrjá leiki og unnið einn og sitja neðstir. Nokkur órói hefur verið í kringum liðið utanvallar en þeir eiga þó enn góða möguleika á að komast alla leið. Síðastliðinn föstudag heimsóttu þeir Harstad Vikings og eftir erfiðleika við að komast á leikstað vegna ófærðar töpuðu þeir 103-107 þar sem Óðinn lék í 19 mínútur og skoraði 17 stig. Af Loga Gunnarssyni er það að frétta að hann er að ná sér af meiðslum sínum en hann fór tvisvar úr axlarlið í nóvember og hann mun leika næsta leik liðs síns Giessen 46ers en þeir heimsækja RheinEnergi Köln næstkomandi laugardagskvöld. Ísak Einarsson lék með Aalborg þegar þeir tóku á móti Horsens IC í dönsku úrvalsdeildinni í gær og töpuðu 64-93 og var þetta þrettánda tap þeirra í vetur en Aalborg eru nýliðar í deildinni og eina liðið sem leikur án bandarísks leikmanns. Ísak átti að venju ágætan leik fyrir Aalborg og skoraði 10 stig og tók 4 fráköst. Isla de Tenerife, lið Signýjar Hermannsdóttur, lék gegn Universitario Ferrol á laugardag og sigraði 70-66 og skoraði Signý 7 stig. Tenerife er nú í 8. sæti spænsku annarar deildarinnar, hefur unnið 6 af 13 leikjum sínum. |