S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
23.1.2004 | 10:54 | phs
Launaþakið sprengt
Úrskurðurinn var kynntur forsvarsmönnum Tindastóls í gær. Hann felur það í sér að félagið hefur ekki heimild til að nota einn af þeim leikmönnum sem þiggur laun hjá deildinni í leikjum sínum. Jafnframt hefur félagið verið sektað um kr. 100.000 vegna brotsins. Eftirlitsnefndin hafði heimild til að draga allt að 4 stig af félaginu í Intersportdeildinni. Ákveðið var að nýta ekki þá heimild, enda hefur félagið skilað inn öllum umbeðnum gögnum, sýnt samstarfsvilja og ekki reynt á neinn hátt að leyna greiðslum. Ástæða þess að félagið fór yfir launaþakið er misskilningur forsvarsmanna þess á því hvað felst í reglugerðinni um launaþak. Félaginu hefur verið gefinn viku frestur til að gera nefndinni grein fyrir þeim aðgerðum sem það hyggst grípa til þannig að það verði undir launaþakinu |