S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
21.1.2004 | 10:20 | bl
Ísak átti góðan leik með Álaborg
Íslendingar eru víða að gera garðinn frægan í körfunni utan landsteinanna. Sport.is segir frá því í körfuboltafréttum að Sauðkrækingurinn Ísak Einarsson hafi leikið sinn fyrsta leik í nokkurn tíma með Álaborg í dönsku 1. deildinni, þegar liðið heimsótti SISU til Kaupmannahafnar á sunnudaginn.
SISU sigraði með 17 stigum, 104-87 og má sjá greinileg batamerki á leik Álaborgarliðsins. Liðið hefur fengið senegalskan leikmann til liðs við sig, Mohamed Niang. Ísak átti mjög góðan leik, skoraði 19 stig á þeim 37 mínútum sem hann lék, þar af 5 þriggja stigakörfur úr 8 tilraunum. Hann tók 2 fráköst, stal 3 boltum en tapaði 1 bolta, segir í fréttinni á Sportid.is. Á heimasíðu Álaborgarliðsins segir einnig: "Það mátti greinilega sjá að endurkoma Ísaks Einarssonar var mikil lyftistöng og gaf liðinu þá þyngd í varnarleiknum sem til þurfti. Áður en Ísak fór til Danmerkur hafði hann leikið 6 tímabil í úrvalsdeildinni; 4 með Tindastóli og 2 með Breiðabliki. |