S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
12.1.2004 | 17:18 | phs
Þjálfaranámskeið
Föstudagur 23. janúar. kl 17:30-18:30 Fríða Rún Þórðardóttir, næringaráðgjafi og næringarfræðingur: Næring íþróttafólks og hollt mataræði. kl 19:00-22:00 Dr. Yuri L. Hanin, vísindamaður og prófessor við Rannsóknastofnun Ólympískra íþróttagreina í Finnlandi (KIHU-Research Institute for Olympic Sports í Jyväskylä).: Psychology and optimal athletic performance; selected aspects in practical work with elite athletes and coaches. (Sálfræði og hámörkun árangurs hjá íþróttafólki; valin atriði frá samvinnu við afreksíþróttafólk og þjálfara (þessi hluti fer fram á ensku). Dr. Yuri Hanin er þekktur á alþjóða vetvangi fyrir sína vinnu á sviði sálfræði þjálfunar. Hann hefur unnið með mörgum finnskum frjálsíþróttamönnum m.a. Aki Parviainen spjótkastara, O.P. Karjalainen sleggjukastara og Johanna Manninen spretthlaupara. Auk þess hefur hann unnið með íþróttamönnum úr mörgun öðrum íþróttagreinum eins og sundi, skíðum, fimleikum, golfi, fótbolta, blaki og hokkí. Dr. Yuri hefur skrifað fjölda greina og bóka um þetta efni og hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir störf sín enda talinn einn af helstu sérfræðingum á þessu sviði í heiminum í dag. Júrí er fæddur í St.Petursborg og hlaut menntun sína og þjálfun í Rússlandi en hefur unnið í Finnlandi við Ólympísku íþróttarannsóknastofnunina síðan 1991. |