© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
     
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
6.1.2004 | 12:50 | bl
Sigurður fékk flest atkvæði
Þá er lokið atkvæðagreiðslu netverja um hverjir skuli skipa byrjunarliðin í stjörnuleik KKÍ sem fram fer á laugardaginn kl. 16:00 í Seljaskóla. Sigurður Á. Þorvaldsson úr Snæfelli hlaut langflest atkvæði að þessu sinni eða 316. Hann er jafnframt eini nýliðinn í byjunarliði norðurliðsins, hinir fjórir voru allir í byrjunarliðinu í fyrra.

Næstur í kosningunni varð I. Magni Hafsteinsson KR með 243 atkvæði. Hann var einnig í byrjunarliði norðursins í fyrra ásamt þeim Hlyn Bæringssyni Snæfelli 229, Eiríki Önundarsyni ÍR 171 og Clifton Cook Tindastól 153.

Flest atkvæði í suðurliðinu hlaut Páll Axel Vilbergsson UMFG 209, en næstir komu Friðrik Stefánsson UMFN 182, Pálmi Sigurgeirsson Breiðabliki 143, Páll Kristinsson UMFN 131 og Brandon Woudstra UMFN 124. Þeir Friðrik og Pálmi voru í byrjunarliði suðursins í fyrra.

Þjálfarar liðanna þeir Friðrik Ingi Rúnarsson UMFG og Bárður Eyþórsson Snæfelli munu síðan í kjölfarið velja 7 leikmenn til viðbótar í stjörnuliðin.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Íslands- og bikarmeistarar ÍS vorið 1991. Aftari röð frá vinstri: Jóhann H. Bjarnason þjálfari, Sigríður Vilhjálmsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir, Elínborg Guðnadóttir, Díanna Gunnarsdóttir, Unnur Hallgrímsdóttir, Jenny Prange, Erla Kristinsdóttir og Ragnhildur Jónsdóttir sjúkraþjálfari. Fremri röð frá vinstri: Júlía Sigursteinsdóttir, Kristín Sigurðardóttir, Þórdís Hrafnkelsdóttir, Kolbrún Leifsdóttir, Vigdís Þórisdóttir og Hafdís Helgadóttir.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið