S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
1.1.2004 | 21:00 | Óskar Ó. Jónsson
Michael Manciel er besti leikmaðurinn samkvæmt tölfræðinni
Manciel skilar 33,2 framlagsstigum til síns liðs og er þar aðeins hærri en Leon Brisport hjá Þór úr Þorlákshöfn sem er með 32,8 að meðaltali. Þriðji er síðan Adam Spanich hjá KFÍ sem spilar ekki meira í deildinni þar sem hann hefur verið leystur undan samningi við Ísafjarðarliðið. Manciel er með góða nýtingu í skotum (49,8%) og í vítum (84%) en hann skorar 27,3 stig, tekur 14,4 fráköst, stelur 3,1 bolta og gefur 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hæsta framlag til síns liðs að meðaltali: (Framlagsjafna NBA-deildarinnar) Lágmörk: 8 leikir 1 Michael Manciel Haukar 33,2 2 Leon Brisport Þór Þ. 32,8 3 Adam Spanich KFÍ 29,2 4 Derrick Allen Keflavík 28,5 5 Nick Boyd Tindastóll 27,6 6 Brandon Woudstra Njarðvík 27,4 7 Jeb Ivey KFÍ 27,3 8 Clifton Cook Tindastóll 26,5 8 Chris Woods KR 26,5 10 Mirko Virijevic Breiðablik 25,8 Intersportdeild karla hefst á nýjan leik með heilli umferð sunnudaginn 4. janúar. Hér á KKÍ-síðunni má nú finna alla hugsanlega topplista yfir bestu (og líka verstu) frammistöðu leikmanna deildarinnar í fyrri hlutanum. Þennan topplista sem og fleiri má finna í ítarlegri samantekt sem er undir greinum á KKÍ-síðunni og hægri er fara beint inn á hér. Næstu daga munu birtast hér á KKÍ-síðunni suttar féttir úr tölfræði deildarinnar það sem af er en hvergi er tekin saman eins umfangsmikil tölfræði innan sérsambanda ÍSÍ eins og hjá Körfuboltasambandinu. |