© 2000-2025 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
       
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
23.12.2003 | 9:35 | phs
Jakob með 13 stig í sigurleik.
Jakob Sigurðarson bakvörður hjá Birmingham-Southern háskólanum í 1. deild bandarísku NCAA háskólakeppninnar lék vel með liði sínu í 81-76 sigri gegn Savannah State skólanum á útivelli í Tiger Arena keppnishöllinni. Átti hann m.a. þátt í að tryggja sigur liðsins með vítaskotum á lokamínútum leiksins, en Jakob nýtti öll 5 vítaskot sín í leiknum.

Jakob lék 35 mínútur í leiknum, eða flestar leikmínútur leikmanna Birmingham-Southern liðsins, og gaf á þeim tíma 5 stoðsendingar, tók fjögur fráköst og stal þremur boltum, auk þess að skora 13 stig eins og fyrr segir.

Fyrir þá sem gaman hafa af tölfræði má geta þess til gamans að Jakob er með hæsta meðaltalsstigaskor leikmanna liðsins það sem af er keppnistímabilinu með 13,9 stig pr. leik. Jakob leikur einnig flestar mínútur af leikmönnum liðsins eða 28,3 mínútur pr. leik., og gefur flestar stoðsendingar leikmanna. Þá er athyglisvert að vítahittni Jakobs er yfir 90% á keppnistímabilinu.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Erlingur Hannesson, fararstjóri, og Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U18 kk, stigu villtan stríðsdans þegar strákarnir í átján ára liðinu tryggðu sér Norðurlandameistaratitilinn í Solna í Svíþjóð í maí 2009. Strákarnir lögðu Finna í úrslitaleik og þeir félgar stóðust ekki mátið og tóku villt dansspor á parketinu í Solna við mikinn fögnuð viðstaddra.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið