S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
23.1.2015 | 15:44 | Kristinn
Ívar og Margrét áfram með kvennalandsliðið.
Ívar og Margrét stýrðu liðinu á síðasta ári á Evrópukeppni Smáþjóða á vegum FIBA Europe og í tveim æfingaleikjum gegn danska landsliðinu í undirbúningnum fyrir það mót. Annar aðstoðarþjálfari verður einnig ráðinn á næstu dögum og mun sá þjálfari einnig þjálfa U20 lið kvenna. Það er margt framundan á þessu ári hjá kvennaliðin en kvennaliðið kemur saman í maí til undirbúnings fyrir Smáþjóðaleikarnna sem fara fram á Íslandi dagana 1.-6. júní í Laugardalshöllinni. Í kjölfarið tekur landsliðið þátt í æfingamóti í Danmörku í júlí sem er undirbúningur fyrir undankeppni Evrópukeppninnar 2017 (EuroBasket women 2017) sem hefst svo í haust. Þá verður í fyrsta sinn keppt í undankeppni EM á meðan keppnistímabilið er í gangi í Evrópu en FIBA Europe hefur sett upp nokkra ákveðna leikdaga eða „glugga“. Í vor veður dregið í riðla fyrir þá keppni og þá kemur í ljós hverjir andstæðingar okkar verða í undankeppninni. Fyrsti leikglugginn verður í nóvember og verða þá leiknir tveir leikir, einn heima og einn úti. |