S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
||
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
31 |
Styrkleikaröðun FIBA Europe fyrir dráttinn
Drátturinn verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV. Liðum er raðað upp eftir árangri þeirra í undankeppninni og síðasta lokamóti EM 2013 þar sem Frakkar stóðu uppi sem sigurvegarar. Ísland verður í 6. styrkleikaflokki og getur því ekki lent í riðli með Hollandi, Rússland eða Eistlandi þar sem aðeins eitt lið úr hverjum flokki fer í hvern riðil. Það er því ljóst að Ísland mun ekki spila í Lettlandi þar sem Lettar hafa valið Eistland með sér í riðil fyrir dráttinn og Ísland á leiðinni til Frakklands, Þýskalands eða Króatíu á EuroBasket 2015. Hver þjóð sem heldur riðil hafði tök á að semja við eitt lið um að leika með sér í riðli fyrirfram. Þar ráða markaðslegir þættir hlut að máli sem og stuttur tími sem var við undirbúning keppninnar þar sem hún átti upprunalega að fara fram í Úkraínu. Vegna ástandsins í landsmálum þar var mótið tekið af Úkraínu og það í fyrsta sinn brotið upp á fjögur lönd. Úrslitin fara svo fram í Frakklandi. Löndin sem leika saman í riðlum áður en dregið er eru: (styrkleikaflokkur innan sviga) -Frakkland(1) og Finnland(2) -Þýskaland(5) og Tyrkland(4) -Króatía(1) og Slóvenía(2) -Lettland(3) og Eistland(6) Áhugasamir geta svo farið í að setja saman sína óska riðla og mótherja. Möguleg útkoma sem dæmi gæti verið eftirfarandi riðill: Spánn-Serbía-Tyrkland-Ítalía-Þýskaland-Ísland eða Frakkland-Finnland-Grikkland-Pólland-Tékkland-Ísland Eftirfarandi listi sýnir styrkleikaflokkana sex og röð liða: 1. Frakkland Litháen Spánn Króatía 2. Slóvenía Úkraína Serbía Finnland 3. Grikkland Tyrkland Lettland Bosnía 4. Pólland Belgía Makedónía Ítalía 5. Þýskaland Ísrael Tékkland Georgía 6. Holland Rússland Ísland Eistland |