S | M | Þ | M | F | F | L |
1 |
2 |
|||||
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
29 |
30 |
12.11.2003 | 10:42 | bl
Keflavík lagði Hyeres-Toulon Var
Derrick Allen fór á kostum í liði Keflvíkinga og skoraði 30 stig, þarf mikilvæg stig á lokamínútum leiksins. Franska liðið var yfir mest allan leikinn en Keflvíkingar, sem ekki hittu vel úr langskotum að þessu sinni, tryggðu sér sigurinn í lokin með frábærum varnarleik og öryggi og yfirvegun frá vítalínunni. Ekki alveg keflvíska aðferðin, en dugði samt. Keflavík á eftir að leika tvo leiki í riðlinum, við portúgölsku liðin á útivelli. Þeir eru því öruggir með 9 stig úr riðlinum og ljóst að þeir lenda í 1. 2. eða 3. sæti riðilsins. Sigur í öðrum leiknum í Portúgal gæti dugað til sigurs í riðlinum. Nick Bradford gerði 16 stig, Magnús Þór Gunnarsson 11, Gunnar Einarsson 10 og Falur Harðarson 8. Næstu leikir Keflavíkur eru í Portúgal 16. og 18. desember. |