© 2000-2026 Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík, Sími 514-4100, Fax 514-4101, kki@kki.is
Viðburðadagatal
S M Þ M F F L
 
 
 
 
 
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
           
| 1999 | 2000 | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 2006 | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 | 2011 | 2012 | 2013 | 2014 | 2015 | 2016 |
1.12.2003 | 22:35 | rg
Íslendingar á fullu í Evrópu
Það má segja að það verði nóg að gera hjá íslenskum leikmönnum út um allan heim í desember. KKI.is hefur tekið saman alla leikdaga íslenskra landsliðsmanna, og sem leika í efstu deild í sínu landi, í desember og kemur þá í ljós að lið þeirra eru að leika alla daga nema níu.

Af Íslendingum erlendis er það annars að frétta að Logi Gunnarsson lék sinn fyrsta leik eftir meiðsli á laugardaginn þegar Giessen heimsótti Karlsruhe. Logi varð fyrir því óláni að hrökkva aftur úr axlarlið og mun ekki leika næstu vikurnar. Karlruhe vann leikinn 82-76 eftir framlengdan leik, en Giessen leiddi með 10 stigum í 4. leikhluta. Logi lék í 35 mínútur í leiknum áður en hann meiddist og skoraði 4 stig en hann lék sem leikstjórnandi þar sem allir aðrir sem valda því hlutverki í liðinu eru meiddir. Og nú er Logi líka meiddur.

Signý Hermannsdóttir lék með liði sínu Isla de Tenerife í gær gegn Canal Isabel II og tapaði 58-66 eftir að hafa verið undir allan leikinn. Signý skoraði 11 stig fyrir Tenerife sem er í 8. sæti í deildinni.

Óðinn Ásgeirsson lék með Ulriken Eagels gegn Asker Aliens, sem eru norskir meistarar, um helgina og töpuðu Ulriken þriðja leik sínum á tímabilinu, 85-91 eftir æsispennandi lokamínútur. Óðinn stóð sig sem fyrr prýðilega, lék í 23 mínútur og skoraði 10 stig auk þess að taka 8 fráköst. Ulriken er í toppbaráttunni í Noregi en þar eru aðeins 8 lið í efstu deild.

Pavel Ermolinskij fór með liði sínu Vichy til Dijon og lék með unglingaliði félagsins sem sigraði leik sinn og skoraði Pavel 12 stig, tók 8 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Hann var svo í hópnum hjá aðalliðinu sem tapaði 91-95 en kom ekki við sögu í leiknum. Vichy er í 12. sæti í frönsku deildinni.
Vichy leikur í bikarkeppni Evrópu líkt og Keflavík, eru í A-riðli vesturdeildarinnar og hafa leikið 3 leiki og sigraði 2. Pavel hefur verið í hópnum í þessum leikjum og nú síðast þegar þeir sigruðu Clube Atletico frá Portúgal 80-78 kom Pavel inná og lék í 3 mínútur.
Mótayfirlit
Mótayfirlit allra flokka
Leikmenn A-landsliðs karla hlýða á þjóðsöng Íslands fyrir leik liðsins gegn Finnlandi 6. september 2006.  Frá vinstri: Magnús Þór Gunnarsson, Friðrik Stefánsson, Jakob Sigurðarson, Jón Nordal Hafsteinsson, Egill Jónasson, Jón Arnór Stefánsson, Páll Axel Vilbergsson, Brenton Birmingham, Fannar Ólafsson, Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon.
DómarahorniðLeiðararTölfræðiSaganViðtalið